Thursday, November 25, 2010

Jæja.... smáááá spenningur í gangi... fór upp í rúm í gærkvöldi til þess eins að bylta mér, henda af mér sænginni og kúra mig undir hana til skiptis, hugsa og hugsa, anda rólega, hugsa fallega, taka öndunaræfingar- í marga klukkutíma en ekkert dugði nema svefntaflan sem ég tók klukkan fimm í morgun! Dauðöfundaði Krumma að sofa svona blítt við hliðina á mér, gjörsamlega áhyggjulausan og ekkert spenntan.

Ég flýg til London kl 9 í fyrramálið og Bryndís ætlar að sækja mig á flugvöllinn. Hún er svo ljúf að leyfa mér að vera hjá sér um helgina og ég býst fastlega við einhverjum látum í London á laugardaginn þar sem við erum að fara á Ladies Night með DJ Pussy Wagon! Getur ekki klikkað!
Það litla sem ég fer með
Það sem gæti hugsanlega klikkað (ef eitthvað) þá er það að ég missi af fluginu mínu til Mumbai á sunnudagsmorguninn kl 10..... 7, 9, 13 að ég nái því nú! Hef allt klárt og skelli mér beint af Dömukvöldi á flugvöllinn, skothelt plan!

Annars er ég bara hrikalega utan við mig í dag.... var heillengi að reyna að koma usb lyklinum mínum í tölvuna áðan og var búin að spyrja Silju um ráð og prófa allar mögulegar aðferðir þegar ég áttaði mig á því að ég var að reyna að setja lykilinn í nettenginguna! 

Humarveisla í kvöld með nánustu fjölskyldunni.... ekki enn kominn kökkur í hálsinn, ætli hann mæti ekki í kvöld, magnist upp í nótt og springi svo út á flugvellinum í fyrrmálið.

Annars er þetta bara síðasta bloggið mitt á Íslandi.... hlakka til að lenda í ævintýrum í Lundúnum, Mumbai, Thailandi og öllum hinum stöðunum sem við komum til með að heimsækja

Hafið það rosalega gott um jólin elsku vinir.... hlakka til að hitta ykkur á næsta ári!
Sigga Bylgja

5 comments:

  1. Góða ferð dúllan mín :*
    -Arna G

    ReplyDelete
  2. góða ferð elskan... skemmtu þér ótrúlega vel og vertu dugleg að blogga fyrir okkur hin =)
    koss og knús frá okkur mæðgum, kv. Inga Hr.

    ReplyDelete
  3. Góða ferð gullið mitt! Hlakka til að lesa bloggin þín og vona að allt gangi vel og það verði allt ólýsanlega gaman! Enn meira hlakka ég svo til að sjá þig eftir smáááá stund :D

    Lovesyou :*

    ReplyDelete
  4. Oh þetta verður svo geggjað og ég er meega öfundsjúk! Gangi þér rosa vel á morgun elsku besta og góða ferð alla leið;) Ég á eftir að sakna þín óendalega mikið perlan mín og er nú þegar farin að telja niður dagana þangað til þú kemur heim.... :(

    Góða skemmtun í London luv!

    Mikil ást til þín <3

    ReplyDelete
  5. Bing Dao Sigga Bylgja

    Mánudagur hér og ég sakna þín mín elskuleg ! Snuðra hér á blogginu fáránlega oft til að gá að þér , hvernig verða næstu sex ég bara spyr ?
    Mundu að klóra þér ekki í pöblikk elskan og passaðu hárið þitt..
    mk. Frú Sólnes

    ReplyDelete

Endilega skildu eftir fallegt komment handa okkur :)